Ís-lendingar á góðum laugardegi

Að tilefni þess að það er farið að frysta á ný þá set ég hérna inn skemmtilegt gamalt og gott myndband sem við tókum fyrir nokkrum árum af "Ís-lendingum".


Þann 31. janúar 2004 fórum við nokkrir félagar saman á sex flugvélum í hörku frosti og lenntum á nokkrum frosnum vötnum hérna í kringum höfuðborgarsvæðið. Það voru flugvélarnar: TF-AKK, TF-SPA, TF-ULV, TF-KLM, TF-UNA OG TF-TAL sem héldu í þessa skemmtilegu för. Fyrst lenntum við á Langavatni sem er á Reynisvatnsheiði (rétt við Grafarholt). Svo flugum svo lágflug yfir Hafravatn þar sem mikill mannfjöldi var samankominn. Því næst var farið áfram og lent á Stíflisdalsvatni á Mosfellsheiði og stoppað þar dágóða stund til að drekka kakó og borða kleinur. Og að lokum heimsóttu ferðalangarnir Meðalfellsvatn í Kjós þar sem stoppað var smá stund áður en haldið var til baka á Tungubakkaflugvöll.

Það er félagi minn Snorri B. Jónsson sem tók þetta skemtilega myndband úr flugvélinni okkar TF-ULV og klippti svo saman. Helling af ljósmyndum frá þessum skemmtilega degi teknum af mér og fleirum má skoða hérna á vef Flugklúbbs Mosfellsbæjar. Sumar þeirra hafi vakið mikla athyggli út um allan heim síðan.

Ég vona að einhverjir hafi gaman af því að sjá þetta.

Flugvélar á Langavatni
Á Langavatni
TF-ULV
Á Langavatni
TF-ULV
Á Langavatni
TF-ULV
Á Stífnisdalsvatni
TF-ULV á flugi yfir Meðalfellsvatni í Kjós
Á Meðalfellsvatni í Kjós
TF-ULV á flugi yfir Meðalfellsvatni í Kjós
Á Meðalfellsvatni í Kjós
TF-ULV á flugi yfir Meðalfellsvatni í Kjós
Á Meðalfellsvatni í Kjós
Guðni og Snorri á flugi á TF-ULV
Ljósmyndarinn Guðni Þorbjörnsson og kvikmyndatökumaðurinn Snorri B. Jónsson flugu saman flugvélinni TF-ULV þennan dag og mynduðu mikið út um gluggan í -12 stiga frosti.


gudni.is - Guðni Þorbjörnsson


Skemmtilegar flugvélamyndir

Upp á síðkastið hef ég farið í nokkur skemmtileg flugvéla-ljósmyndaflug (air to air) með aðal flugvélaljósmyndara Íslands Baldur Sveinsson með mér. Baldur er að safna góðum myndum af flugvélum á flugi fyrir útgáfu á nýrri flugvélamyndabók og við erum þónokkrir flugmenn sem höfum verið að fljúga með Baldur í þessum tilgangi nú í sumar.. Baldur gaf út glæsilega flugmyndabók fyrir síðustu jól. Það var bókin FLugvélar á og yfir Íslandi.

Fimmtudagskvöldið 14. ágúst skruppum við í stutt flug í nágrenni borgarinnar til að mynda saman og í sitthvoru lagi tvær Jodelflugvélar. Litla úlfinn minn - TF-ULV (Jodel DR1050) og úlfinn - TF-ULF (Jodel D-140). Ég fór fljúgandi á TF-MOS (Cessna 170) með Baldur flugljósmyndara meðferðis. Ég fékk Jón Karl Snorrason (yfir-Jodel-pabba á Íslandi) til að fljúga minni flugvél TF-ULV og Örn Johnson flaug úlfinum TF-ULF sem hann á ásamt Jóni Karli.
Hér má sjá nokkrar myndir sem komu út úr þessu.

Hérna eru svo nokkrar myndir sem Baldur tók af TF-MOS (Cessna 170) úr litla úlfinum mínum á fimmtudagskvöldi í júlí. Sigurjón Valsson flýgur TF-MOS á þessum myndum.

Myndir © Baldur Sveinsson - www.verslo.is/baldur

Flugkveðja // gudni.is - Guðni Þorbjörnsson


DVD - Íslenskir Atvinnuflugmenn

Ég var að horfa á mjög skemmtilegan DVD mynddisk sem kom út nú í byrjun ágúst. Það var diskurinn "Íslenskir Atvinnuflugmenn" eftir Snorra Bjarnvin Jónsson og Ingvar Má Jónsson.

 

Um er að ræða mjög skemmtilega og fræðandi mynd um íslenska atvinnuflugmenn. Myndin sjálf er 60 mínútur að lengd + 2 klukkustundir af aukaefni. Þetta er eitthvað sem enginn flugáhugamaður má láta framhjá sér fara!

Hægt er að kaupa diskinn á 2500 krónur með því að hringja í síma 691-8338 eða með því að senda tölvupóst á dabbfilms@gmail.com

 

Hér má skoða sýnishorn úr myndinni:

 

gudni.is - Guðni Þorbjörnsson


Heimasmíðaðar flugvélar á Íslandi

Frábært að heyra að þessi merkilega tveggja hreyfla flugvél hans Kristjáns sé nú komin í loftið. Innilega til hamingju með áfangan Kristján. Það er draumur sérhvers laghents flugmanns að fá að fljúga sinni eigin heimasmíðuðu flugvél. Ég vona að ég verði sjálfur þeirrar gæfu aðnjótandi einhverntíman á mínum flugferli.

Guðni og Árni Sigurbergsson Ég hitti í morgun Árna Sigurbergsson sem tók myndina sem fylgdi með mbl.is fréttinni og Árni sagði mér að hann hefði flogið samferða nýju vél Kristjáns í júnfrúarfluginu í gær. Árni var á sinni heimasmíðuðu flugvél TF-RVA. Sú flugvél er af gerðinni Vans RV-4 og er algjör listasmíði. Sú vel er reyndar ekki hönnuð á Íslandi, heldur smíðuð frá grunni eftir teikningum.

Til gamans má geta þess að Árni Sigurbergsson fyrrum flugstjóri á einmitt tvær heimasmíðaðar flugvélar sem hann smíðaði sjálfur. Þær tvær flugvélar eru að mínu mati með allra glæsilegustu einkaflugvélum sem til eru hérlendis. Það eru flugvélarnar TF-ART sem er af gerðinni Vans RV-6 og TF-RVA sem er Vans RV-4.

Þónokkuð margar heimasmíðaðar (Experimantal) flugvélar eru til á Íslandi og margar flugvélar eru í smíðum.

Hérna eru myndir af nokkrum glæsilegum heimasmíðuðum flugvélum:

IMG 1738
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson

IMG 1695
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
IMG 1693
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson

TF-ART - Vans RV-6
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson

TF-ART - Vans RV-6
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson

TF-ART - Vans RV-6                                                                                                                                   
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson

                    Björn Thoroddsen við TF-BLU - Pitts Special M12

Hérna eru mynd af TF-BLU sem er splunkuný heimasmíðuð listflugvél af gerðinni Pitts Special M12 ("Moster Pitts"). Eigandinn og flugvélasmiðurinn er Björn Thoroddsen fyrrum flugstjóri. Hann flaug þessari flugvél í fyrsta sinn árið 2007. Hún er knúin áfram með rússneskum 9 cylendra stjörnuhreyfli sem skilar 360 hestöflum. 
Orðið "Monster-Pitts" segir allt sem segja þarf um þessa vél því hún er ólýsanlega öflug!!

 

                  TF-BTH - Pitts Special S-2E - Eigandi Sigurður Ásgeirsson

Hér er svo flugvélin TF-BTH sem er heimasmíðuð listflugvél af gerðinni Pitts Special S-2E. Björn Thoroddsen smíðaði vélina og flaug henni í fyrsta sinn árið 1985. Í dag á Sigurður "Þyrla" Ásgeirsson vélina. Í henni er 4 cylendra Continental O-360 mótor sem skilar um 220 hestöflum.

 

Guðni við Pitts Special listflugvél sem hann á í smíðum   Guðni við Pitts Special listflugvél sem hann á í smíðum
Guðni Þorbjörnsson við stálgrindarskrokk af heimasmíðaðri Pitts Special S-2 listflugvél sem er í smíðum.

Hérna er svo ég sjálfur við grind af heimasmíðaðri Pitts Special S-2 listflugvél (tvíþekju) sem ég á sjálfur og er í smíðum. Grindin sjálf er að nánast fullsmíðuð og kláruð. Það á einungis eftir að sjóða á hana rörasamstæðu til að festa efri vænginn á.
Vængirnir eru svo smíðaðir úr timbri og dúk. Vængbitarnir og vængrifin eru úr timbri og svo er allt að lokum klætt með dúk. Að smíða svona flugvél frá grunni er mikið verk og tekur í flestum tilfellum nokkur ár að framkvæma. Þó aðeins mismunandi eftir því hversu hratt menn vinna verkið. Þessar myndir voru t.d. teknar árið 2004 og ekki er þessi flugvél farin að fljúga ennþá....

                                       Hún er nú samt eiginlega komin "í loftið" 
                             (en.....Reyndar bara í loftið á flugskýlinu...)

gudni.is - Guðni Þorbjörnsson


mbl.is Hannaði og smíðaði eigin flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

F1 Bloggarar í rásmarkinu

Í gær var skemmtilegur og svolítið óvenjulegur formúludagur hjá mér. Ég var gestur í sjónvarpsþættinum "Við rásmarkið" hjá Gunnlaugi Rögnvaldssyni á Stöð 2 Sport (gamla SÝN). Við rásmarkið er formúluspjallþáttur um komandi keppnishelgi, sýndur á fimmtudagskvöldum fyrir F1 mót.

Í F1 þættinum Við rásmarkið á Stöð 2 Sport
Mjög ósammála F1 bloggarar rökræða í sjónvarpssal - Hver öðrum gáfulegri

Ég var þar í stódíóinu ásamt tveimur öðrum formúluáhugamönnum. Það voru formúlubloggararnir Gústav Daníelsson (Alonso dýrkandi) og Sveinn Hans Gíslason Ferrari maður úr HS Bræðrum.

Við höfum mjög ólíkar skoðanir á nánast öllu hvað keppnislið og ökumenn varðar og gátum þar af leiðandi rifist svolítið. Gulli Rögg hafði held ég gaman af að egna okkur svolítið saman í rökræðum.

Við vorum a.m.k. alveg ótrúlega sammála um það að vera ekki sammála um neitt nema kannski hárgreiðsluna okkar...

Guðni Þorbjörnsson í F1 þættinum Við rásmarkið
Guðni er mjög tryggur og harður McLaren maður út í gegn

Gústav Daníelsson í F1 þættinum Við rásmarkið
Gústav Daníelsson er mjög blóðheitur Alonso dýrkandi. Fyrrum HS Bræðramaður.

Sveinn Hans Gíslason í F1 þættinum Við rásmarkið
Sveinn Hans Gíslason er harður Ferrari maður úr HS Bræðrum.

gudni.is - Guðni Þorbjörnsson


Í minningu um Sæcó

Sæcó Ég tók hérna saman svolítið af myndum af honum Sæcó mínum sem að dó því miður í síðustu viku.

Ég á eftir að sakna hans alveg endalaust mikið og það er allt búið að vera mjög tómlegt hjá mér núna þessa fáu daga nú síðan hann dó. Hann var svo frábær persónuleiki í alla staði og mikill vinur minn. Hann var alveg rosalega mikið kúrudýr og svaf t.d. alla tíð uppi í rúminu mínu ofan á sinni eigin sæng.

Sæcó
Fæddur - 27. júní 2002
Dáinn - 5. febrúar 2008

Blessuð sé minningin um Sæcó

Í Minningu um Sæcó - Fleiri myndir

Guðni Þorbjörnsson

Sæcó   Sæcó   Sæcó   Sæcó   Sæcó   Sæcó   Sæcó   Sæcó


Sæcó minn er allur

Það er mikill sorgardagur hjá mér og minni fjölskyldu í dag. Guðni & Sæcó Kötturinn minn hann Sæcó dó í morgun á Dýraspítalanum í Víðidal. Sæcó var búinn að vera talsvert mikið veikur í meltingunni upp á síðkastið og dó af þeim sökum.

Sæcó minn var fæddur þann 27. júní 2002 og var því rújmlega fimm og hálfs árs gamall blessaður. Hann var alveg óskaplega ljúfur og indæll köttur í alla staði.

Guðni & Sæcó Það er ótrúlegt hvað svona gæludýr verða fljótt tengd og nákomin manni og verða bara einn af fjölskyldumeðlimunum.

Blessuð sé minningin um Sæcó.

Guðni Þorbjörnsson


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband