7.6.2008 | 23:54
Heimasmíðaðar flugvélar á Íslandi
Frábært að heyra að þessi merkilega tveggja hreyfla flugvél hans Kristjáns sé nú komin í loftið. Innilega til hamingju með áfangan Kristján. Það er draumur sérhvers laghents flugmanns að fá að fljúga sinni eigin heimasmíðuðu flugvél. Ég vona að ég verði sjálfur þeirrar gæfu aðnjótandi einhverntíman á mínum flugferli.
Ég hitti í morgun Árna Sigurbergsson sem tók myndina sem fylgdi með mbl.is fréttinni og Árni sagði mér að hann hefði flogið samferða nýju vél Kristjáns í júnfrúarfluginu í gær. Árni var á sinni heimasmíðuðu flugvél TF-RVA. Sú flugvél er af gerðinni Vans RV-4 og er algjör listasmíði. Sú vel er reyndar ekki hönnuð á Íslandi, heldur smíðuð frá grunni eftir teikningum.
Til gamans má geta þess að Árni Sigurbergsson fyrrum flugstjóri á einmitt tvær heimasmíðaðar flugvélar sem hann smíðaði sjálfur. Þær tvær flugvélar eru að mínu mati með allra glæsilegustu einkaflugvélum sem til eru hérlendis. Það eru flugvélarnar TF-ART sem er af gerðinni Vans RV-6 og TF-RVA sem er Vans RV-4.
Þónokkuð margar heimasmíðaðar (Experimantal) flugvélar eru til á Íslandi og margar flugvélar eru í smíðum.
Hérna eru myndir af nokkrum glæsilegum heimasmíðuðum flugvélum:
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
TF-RVA - Vans RV-4 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
TF-RVA - Vans RV-6 - Eigandi og smiður: Árni Sigurbergsson
Hérna eru mynd af TF-BLU sem er splunkuný heimasmíðuð listflugvél af gerðinni Pitts Special M12 ("Moster Pitts"). Eigandinn og flugvélasmiðurinn er Björn Thoroddsen fyrrum flugstjóri. Hann flaug þessari flugvél í fyrsta sinn árið 2007. Hún er knúin áfram með rússneskum 9 cylendra stjörnuhreyfli sem skilar 360 hestöflum.
Orðið "Monster-Pitts" segir allt sem segja þarf um þessa vél því hún er ólýsanlega öflug!!
TF-BTH - Pitts Special S-2E - Eigandi Sigurður Ásgeirsson
Hér er svo flugvélin TF-BTH sem er heimasmíðuð listflugvél af gerðinni Pitts Special S-2E. Björn Thoroddsen smíðaði vélina og flaug henni í fyrsta sinn árið 1985. Í dag á Sigurður "Þyrla" Ásgeirsson vélina. Í henni er 4 cylendra Continental O-360 mótor sem skilar um 220 hestöflum.
Guðni Þorbjörnsson við stálgrindarskrokk af heimasmíðaðri Pitts Special S-2 listflugvél sem er í smíðum.
Hérna er svo ég sjálfur við grind af heimasmíðaðri Pitts Special S-2 listflugvél (tvíþekju) sem ég á sjálfur og er í smíðum. Grindin sjálf er að nánast fullsmíðuð og kláruð. Það á einungis eftir að sjóða á hana rörasamstæðu til að festa efri vænginn á.
Vængirnir eru svo smíðaðir úr timbri og dúk. Vængbitarnir og vængrifin eru úr timbri og svo er allt að lokum klætt með dúk. Að smíða svona flugvél frá grunni er mikið verk og tekur í flestum tilfellum nokkur ár að framkvæma. Þó aðeins mismunandi eftir því hversu hratt menn vinna verkið. Þessar myndir voru t.d. teknar árið 2004 og ekki er þessi flugvél farin að fljúga ennþá....
(en.....Reyndar bara í loftið á flugskýlinu...)
gudni.is - Guðni Þorbjörnsson
|
Hannaði og smíðaði eigin flugvél |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Flugvélar og Flugmál | Breytt 8.6.2008 kl. 13:31 | Facebook























Athugasemdir
Vissulega eru þetta fallegir gripir -- en ég kýs helst að halda mig við láð. Lögur og loft eru eitthvað svo gljúp í sér að mínu viti.
Gaman að fá þig aftur meðal lifandi bloggvina, Guðni. Sumir þeirra virðast hálf daufir nú til dags.
Sigurður Hreiðar, 8.6.2008 kl. 11:40
Svalt
Ómar Ingi, 8.6.2008 kl. 12:41
Takk fyrir það Sigurður Hreiðar. Hefðir þú ekki bara gaman af því að koma í stutt útsýnisflug um Mosfellsbæinn þinn fallega? Ég er alveg viss um það. Ég skal með glöðu geði bjóða þér í skemmtilegt útsýnisflug frá Tungubakkaflugvelli hvenær sem er.
gudni.is, 8.6.2008 kl. 13:35
Frábær grein hjá þér Guðni, við sem þekkjum ekki til vitum ekki um þá gífurlegu vinnu og natni sem þessir menn leggja á sig fyrir áhugamál sín og ég er ekki í minnsta vafa um það að þessar vélar eru alls ekki síðri en verksmiðjuframleiddar vélar í það minnsta tel ég að viðkomandi menn setji "hluta" af sjálfum sér í þessar vélar.
Jóhann Elíasson, 8.6.2008 kl. 21:14
Að fljúga eigin hönnun hlýtur að vera toppurinn á tilverunni.
Sturla Snorrason, 8.6.2008 kl. 23:05
Þér tekst vel til að skrifa greinarnar þannig að sá sem hefur ekki hundsvit á umræðuefninu, fær skyndilega áhuga á því. Kannski að ég fái einhvern tíman "far" með þér á þinni eigin smíði...?
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 9.6.2008 kl. 00:36
Þetta er skemmtilegt og frábært á fá svona gott yfirlit yfir þessar vélar.
Ég fer oft út á flugvöll að horfa á fallegar flugvélar. Sjálfur er ég með "flugsimma" veikina á háu stigi.

Marinó Már Marinósson, 9.6.2008 kl. 15:19
Ég keypti mér einu sinni far með Birni Thoroddsen á flugdegi á Reykjavíkurflugvelli, það hefur líklega verið í TF-BTH sem myndin er af hérna að ofan. Það er lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað missa af og ótrúlega gaman. Engu líkt að hanga í beltunum í opnum klefa á hvolfi yfir Reykjavíkurhöfn!
Einar Steinsson, 9.6.2008 kl. 20:00
Þakka ykkur öllum innilega fyrir undirtektirnar.
Systir góð (Sigrún..),
Ég hélt þú vissir hvað þinn besti bróðir er fær á hinum ýmsum fjölbreyttu sviðum lífsins. Nú dettur mér bara í hug setnig sem ég heyrði nýlega... Einn mjög svo ágætur ættingi okkar fór í flugtúr með mér kvöld eitt fyrir stuttu síðan og hafði mjög gaman af. Svo þegar ég lennti flugvélinni óskaplega pent og mjúkt í lok flugtúrs sagði viðkomandi aðili - "Mikið ertu nú laginn við þetta Guðni. Að hugsa sér ef þú værir nú svona laginn við konur...."
Einar:
Gaman að heyra að þú hafir prófað listflug með Birni Thoroddsen. Það hefur já 99% pottþétt verið í TF-BTH. Hún var áður hvít á lit og öll merkt SHELL. Slíkt er engu líkt. Flugmannsferill minn hóft fyrir alvöru með svona flugtúr sem ég keypti af Birni Thoroddsen árið 1999. Eftir það fór ég beint í flugskólann.
Marinó.
Gaman að heyra af áhuganum hjá þér eins og hjá öðrum. Ótrúlega margir hafa áhuga á flugi og flugvélum. Dreymir ekki alla um að fljúga eins og fuglinn fljúgandi? Þú ert alltaf velkominn til okkar á Tungubakkaflugvöll til að skoða flug og flugvélar. Ég skal bjóða þér í smá flugtúr til gamans ef þig langar til.
gudni.is, 11.6.2008 kl. 02:04
Takk fyrir þetta Guðni. Hver veit nema ég láti sjá mig uppfrá einn fallegan sólardag og þiggi þetta höfðinglega boð frá þér.
Marinó Már Marinósson, 11.6.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.